Hæææjjjj

Þetta er ég að vera pirruð út í ykkur fyrir að blogga ekki!
btw þá eru páskarnir búinir að vera mjög góðir og feitir, best að fara í kaffiboð til ömmu núna til þess að éta aðeins meira.
Gleðilega páska:D
oooooooooh ég held ég sé að fá sykursjokk
Muhahh
Jæja jújú, nú hefur letihaugurinn loksins tekið sig saman í andlitinu og ákveðið að blogga öllum til mikillar hamingju, hehe!
Það hefur margt gerst síðan ég bloggaði síðan, fór til Reykjavíkur til Magga í byrjun febrúar sem var frábært! Fórum í verslunarleiðangur bæði á föstudeginum og laugardeginum, fórum í bíó og já, svo tókst okkur líka að vera dáldið heimsk og taka vitlausan strætó, þannig við enduðum á hinum enda bæjarins en Einar kallinn kom og bjargaði okkur eftir langa bið!! :-)
Já svo fór ég á snilldar þorrablót um daginn á Breiðdalsvík, það var ball á eftir með danshljómsveit Friðjóns, æðislega gaman, og svo er ég í þessum töluðu orðum að reyna að láta myndirnar frá því á netið en það hefur gengið MJÖG hægt!
Ég og Hófí HRESSAR, haha!
oog þessari mynd stal ég frá Agnesi, vonandi verður hún ekki brjáluð út í mig :'D
Barkinn er á fimmtudaginn og ball með Páli Óskari á eftir! Ég hlakka svo mikið til, Maggi ætlar að koma og HÓFÍ ÆTLAR LÍKA AÐ KOMA hvort sem hún vill eða ekki!! hehe!
Okkur Elvu gengur bara ágætlega að tolla saman í herbergi.. hún talar samt alveg SLATTA upp úr svefni!! þannig að hún er alltaf jafn geðveik greyið:P
HEhHE.
ég er að pæla í að vera ekkert að hafa þetta lengra í kvöld, góða nótt elskurnar og muniði að komment eru alltaf vel þegin
sól sól skín á mig!
og Gleðilegan Konudag konur..:)
þar sem fröken Arna Silja ER MJÖG MJÖG MIKIÐ LÖT þá ætla ég að blogga hérna:)
það er nú voða litið búið að gerast það voru opnir dagar í seinustu viku og á miðvikudaginn skrapp maður á Austfirsku Ólympíuleikana og því miður vann VA.. en allavega ég horfði á einn strák handleggsbrotna þar.. ég get nú ekki sagt að það sé mjög falleg sjón..:/!
síðan er maður búin að vera að vakna kl 11 til 12 á morgnana seinstu viku.. og já ég kalla 11 til 12 morgun dagurinn byrjar ekki hjá mér fyrr en kl 4 á daginn takk fyrir! þa´er ég fyrst farin að vakna almenilega!
En já talandi um að eiga sér ekkert líf þá er ég búin að vera að rúnta nánast alla seinustu viku líka.. ég og Ævar rúntuðum til hálf 3 um nótt á miðvikudaginn en það var reyndar útaf ég þurfti að halda mér vaknaði til að geta horft á tunglmyrkvan upp í skóla..! en nei það kom eitthvað helvitis ský og var eitthvað að vera með leiðindi! en ég sá samt eitthvað smá..! :)
En Helgin er búin að vera mjög mikið Chill hjá mér.. föstudagurinn þá fóru ma og pa upp í egs á food and fun þannig ég eldaði handa örnu silju og Hófí.. svo rúntuðum við með Gumma, og svo fórum við Hófí upp í Egs með Gumma og ég æltaði að hitta Ævar en hann var einhverstaðar út í Rassgati! Laugardagurinn ég byrjaði á því að taka viðtal við ömmu mína þar sem ég þarf að vera búin með 2 til 3 blaðsýna ritgerð um hana:D og mín kláraði það í gær á klukkutíma:D hell yeahh!(Y) svo vildi Hófí eitthvað Lessast með mér þannig ég hitti hana og svo réðst hún á andlitið á mér eins og þið fáið að sjá myndir af þegar hún er búin að setja þær inn og síðan horfðum við á EUROVISION og VÁ ég er sátt með lagið sem vann ekki helvitis hey hey hey lagið! það var svo LEIÐINLEGT.! hehe
allavegana.. ég vil comment við bloggið mitt..og segjið eitthvað agalega skemmtilegt hehehehe:)
////Elva Bára
Gleðilegan Valentínusardag!
Hvað segiði gott?
Ég segi allt ágætt bara :)
Síðasta laugardag var haldið á þorrablót breiðdælinga :) Það var bara nokkuð gaman get ég sagt :) ég skemmti mér mjög vel eins og flestir held ég, ég er allavega ekki búin að heyra um neinn sem hafði ekki gaman haha ;D Við fórum allar þrjár, en Elva var ekki á ballinu, því miður segi ég! það hefði verið geggjað að hafa hana þarna líka :D
Þessa viku er ég ekki búin að gera neitt voða mikið, ég ákvað að taka herbergið mitt í gegn, og núna er það ótrúlega fínt :) ég er mjög ánægð með það :)
Svo við tölum nú meira um mig, þá fór ég í annað viðtal hjá alcoa á miðvikudaginn í síðustu viku, og þá var ég beðin að gefa þeim viku með að svara, en ég er ekki búin að fá neitt svar svo ég hugsa að ég hringi í þau á morgun og athugi með þetta! Ég er farin að örvænta! mig vantar svo vinnu :/ ég held ég hafi aldrei verið jafn dugleg við að taka til eins og núna og það er bara útaf því að mig vantar eitthvað að gera :O mjög speees held ég, miða við mig allavega!
Mig langar solldið mikið suður núna! Ég sakna Höllu! og Viggu og Krissu og Sólrúnar og Jónu og Antons! og eiginlega bara allra! og ekki bara fólksins, ég sakna laugarvegarins, og ártúnshöfða! og HLÖLLABÁTA!!! ég sakna líka FÁ!! vá, en ég kem vonandi í mars :) ég hlakka mikið til :)
Elva og Arna Silja ætla að koma heim um helgina :) mér finnst það æði :D ég hlakka til að hitta ykkur ;D
hmm, um daginn uppgötvuðum ég og Halla nýjan hlut! það er Skype, ég elska Skype!! ég mæli með því að allir fái sér það, miklu sniðugara en msn :P hehe
En ég held ég hafi það ekki meira í bili :)
-Hófí


Ég heiti Elva og ég er Stór og frek!
ég stend mig svo vel í öllu svona bloggerí:)
Það er búið að vera vibbalegur snjór hérna á Egs og ég á það til að fara á rúntin með honum Ævari vini mínum sem því miður hefur gaman að því að FESTA SIG ég hata það.. með honum er ég búin að festa mig svona um það bil 7 sinnum síðan á sunnudaginn!! HALLÓ er þetta eðlilegt???? svo segjir hann alltaf Subaru getur allt Subaru er Jeppi... jeje JEPPI MY ASS!!:p hehe
ég fór síðan heim um helgina.. lá þar í leti alla helgina fór að sofa báða dagana kl 00:00 eða eitthvað svoleiðis og vaknaði kl 12:00... besti svefn lengi:) fór síðan snemma uppeftir á sunnudeginum með Hauki.. pabbi kom með karlinn bara fluttur á Reyðarfjörð allavega næstu vikurnar!
jújú svo fer maður á barkaball núna á föstudaginn nenni ekki á söngvakeppnina.. hehe svo fer maður kannski á Þorrablót Breiðdælinga ef mamma fer og ef maður nennir.. ætli maður verði ekki bara dauður upp í rúmi??? hehe spurning...=P
en haha það gerðist voða fyndið atvik um daginn.. ég,Benný,Birkir Þór og Ragnar vorum á rútninum svo var Benný að fara að setja bensín á bílinn og þar sem mín er svo "Góðhjörtuð" þá bauðst ég til að gera það.. en ÉG KANN BARA ALLS EKKI AÐ SETJA BENSÍN Á BÍL ég stóð ÚTI í svona 10 til 15 MÍN.. hehe ég helt að ég mundi þurfa að taka helvitis dæluna með mér í bíllinn því ég helt að bjévítans höndin væri föst við hana..! jújú svona er ég:D
en já annas er voða litið spennandi búið að gerast í mínu lífi bara það sama, ég að FREKJAST OG VERA PIRRANDI:D hehe ég held að Matti fari bráðum að drepa mig.. hann er pottþétt feginn að losna við mig úr ættinni:') hahaha

Já hér var ég sko TILBÚIN í vonda veðrið hérna á EGS fyrir helgi:P

Ljóti andarunginn hún Arna Silja var líka tilbúin:P
Jæja gott blogg :P KVITTA TAKK ÉG VEIT HVAR ÞIÐ EIGIÐ HEIMA!!!!
YKKAR: Elva Bára

Reykjavík á morgun!!
Í gær var mér sagt dálítið asnalegt..
Maggi sagði mér að hann hafi ætlað að reyna að taka strætó heim til sín því að hann hafði farið niður í bæ með vinnufélaganum sínum á boxæfingu og svo hoppaði hann bara upp í strætó og strætóbílstjórinn var bara sæmilega jolly við hann og var eitthvað að reyna að leiðbeina honum því að hann kann náttúrulega ekkert á strætókerfið ennþá. Svo þurfti hann að taka annan strætó og keypti sér pulsu eða pylsu og malt á meðan hann beið eftir að næsti strætó myndi koma. Næsti strætó kom um leið og hann var búinn að kaupa sér að borða og hann ætlaði að fara upp í hann með matinn en hann var nú fljótlega stoppaður af strætóbílstjóranum því að reglurnar eru víst þannig að það má enginn fara með mat þangað, þannig að hann henti pyslunni og ætlaði að gera aðra tilraun til að fara upp í strætóinn en þá mátti hann það ekki því að hann var ennþá með maltið. Maggi baðst innilegrar afsökunar og sagðist ekkert kunna á reglurnar og svona, sagðist koma frá austurlandi. Þá sagði bílstjórinn einhvernveginn svona: ,,Þá skaltu bara vera á austurlandi!!" en það er ekki aðal hneykslið því að Maggi fór og henti maltinu og ætlaði að koma aftur, en þá var strætóinn bara farinn og strætóbílstjórinn hafði meira að segja tekið skiptimiðann hans, og hann sat uppi með tveggja og hálfs klukkutíma strætóvesen. Hversu ÖMurlegt er þetta? Hver veit, kannski átti hann bara slæman dag eða eitthvað en fyrr má nú fyrr vera!! Svona fólk á bara ekkert að vinna í kringum annað fólk, þessi náungi væri örugglega betur settur einhversstaðar í vinnu á mjög, MJÖHÖÖHÖG afskekktum stað.
En allavegana þá er ég að fara til Reykjavíkur á morgun og þá getum við kannski bara farið saman í strætó og reynt að læra á þetta í sameiningu, ekki þorir maður að gera eitthvað vitlaust aftur í sambandi við þetta allavegana. Þá gæti nú farið verr. hehe!
En ég er að hugsa um að segja þetta bara gott í bili allavegana, ætli það sé ekki bara komið að Elvu að blogga eða hvað?

síjú
Brothers Forever!
Elva og Arna Silja komu heim til mín um helgina :D mér til mikillar ánægju :)
á laugardaginn gerðum við Elva salsa og horfðum á leikinn :D svo fórum við heim og svo á rúntinn með Örnu Silju, geggjað gaman :)
Svo ákváðum við Elva að gista heima hjá mér, það var skrautlegt kvöld! Elva er með sjúkdóm! alvarlegann, hún hætti ekki að hlæja, og nei gott fólk! það er ekki gott að hlæja alltaf og hlæja! haha vonandi bara að hún fái þá meðferð sem hún þarf ;D
ég hata Euro shopper, þetta fyrirtæki framleiðir alltof mikið af hlutum! það fer í taugarnar á mér.
ég get alltaf borðað súkkulaði! don't know why!:S
ég hef aldrei brotið bein eða verið saumuð, en samt hefur mér tekist að brjóta sömu tönnina tvisvar!
ég er rauðhærð! (þarf að segja eitthvað fleyra?) HAHA
ég get ekki drukkið coke úr flösku ef miðinn er rifinn af eða ef það er helt smá úr flöskunni á jörðina þá get ég ekki klárað, þetta gildir um alla drykki! bragðið er bara ekki það sama :O
ég var bara að hugsa um hvað ég er skrítin og ákvað að deila því með ykkur :)
Síðan ég kom aftur austur þá hef ég eiginlega fengið of mikinn tíma til að hugsa og þegar ég get hugsað svona mikið þá sé ég stundum hvað ég er skrítin ;D hehe
Ég var að horfa á American Idol áðan og ég verð að sýna ykkur atriði þar! ég DÓ úr hlátri!!;D;D
http://youtube.com/watch?v=SuH0v7GIIwI
En ég er að pæla í að hafa það ekki lengra í bili :)
Bæjóspæjó ;)

-Hófí ekkisvoskrítna ;D
Bloggedí
Hófí freka manneskja skipaði mér að blogga svo að ég þorði ekki annað! :-)
Ég og Elva erum komnar í skólann og við erum ekki búnar að henda hvor annari út, það kalla ég nokkuð merkilegt því að þetta eru frekar plásslítil herbergi og við báðar mjög plássfrekar og skapstórar! hehe
Ég er búin að panta mér flug til Reykjavíkur 31. janúar, aðallega til þess að hitta kallinn minn og svo er líka mjög langt síðan ég hef komið þangað! ég get EKKI beðið!
Ég átti ekki mjög góðan dag. Ég og Elva skruppum niður í te og kaffi þegar við vorum í eyðu og hvað haldiði!? það var bara sprungið dekk þegar við komumst þangað, svo að ég gerði nú heiðarlega tilraun til þess að skipta um dekk og tjakkaði bílinn upp en þá var felgan bara algerlega pikkföst og ég þorði ekki að farað taka mikið á henni því það var dáldið mikið fólk þarna í kringum og ég hefði sjálfsagt bara dottið á rassinn eins og venjulega þegar ég reyni að gera einhvern skapaðan hlut í sambandi við dekk og felgur!
En ég er að hugsa um að enda þetta blogg á fallegum myndum
Maggi er sérlega efnilegur ljósmyndari.....![]()

Ég og Maggi á annan í jólum ballinu :)
Með kveðju og von um nokkur komment,
Arna Silja![]()
P´s. Hófí, það er komið að þér!
pps. djö hvað ég er svöng. Á einhver skæri??
Þreytt.is!
já úff! ég er ekkert smá þreytt! þar sem mín fór í smá afmælispartý í gær til Bennýar og Fjólu þetta var rosa fínt partý hjá ykkur elskunar;*
en já kvöldið byrjaði á því að maður fór og fékk sér að borða með Kollu,Freydísi og Sævar:)
Síðan kom Ævar og sótti okkur því við nenntum ekki að labba eða aðalega ég:P hehe ! síðan var rúntað og sævar fór og svo kolla og svo kom Sindri Skoda og við rúntuðum og svo fórum við Freydís að klæða okkur fyrir partyið og Svo var rúntað meira og hehe já skemmtileg! hmm
Síðan kíkti maður í partý og síðan enduðum við Freydís bara Með Sindra Skoda á rúntinn:) og vorum bara með honum hehe! very nice:)
svo vaknaði maður í morgun kl hálf 9! því hún Freydís Edda var að fara að vinna og ég fór uppá víst og hringdi bara 4 til 5 sinnum í Sævar því hann ætlaði að opna fyrir mér! en síðan var Steinunn T að fara út þannig komst inn takk Sævar fyrir ekki neitt:P síðan fór ég aftur að sofa sofa sofa rótt:D
Síðan komu Arnór og Kjartan Ernir og sóttu mig og svo fór kjarri og við Arnór fórum í kaupó ég keypti mér smá Nammi og þar hittum við Freydísi og hann Árna herramann haha! síðan fengum við okkur að borða! og síðan HEIM!:D
já úff skemmtilegt blogg NOT ég hef svo ekkert að segja Arna silja var eitthvað að væla að það væri komið að mér! en já stundataflan mín er allt í lagi! ég er í 15 einingum! og bara 2 í eyðu!:( vil vera oftar! hehe en ég er þó með stelpum sem ég þekkji í Íþróttum!
en já ég vil comment við þetta leiðinlega blogg! haha
Kveðja Elva Bára Þreytta.is
Breiðdalsvík.....
Ég held ég sé búin að missa alla mína blogg hæfileika, en ég ætla að rifja þá uppá nýtt..
Það er ekkert í fréttum! EKKERT!
og ég get alveg sagi ykkur afhverju það er, það er einfaldlega vegna þess að ég er alein hérna á Breiðdalsvík á meðan allir hinir eru í burtu! og mér finnst það ekkert sérlega gaman. Ég óska þess á hverjum degi núna að fá símtal um vinnu eða eitthvað, svo ég geti farið að gera eitthvað annað en ekki neitt :P hehe eeen til að líta á björtu hliðarnar þá fæ ég bara lengra jólafrí ;D
Ég fór reyndar í gær uppí Egs með mömmu og pabba, en ég ákvað að láta engann vita því þetta var klukkan 7 um morguninn, og ég var komin heim um 11, svo ég held eiginlega að ég hafi gert ykkur stelpur greiða með því að hringja ekki ;D hehe
Ég hlakka mjög mikið til helgarinnar, og ég ætla eiginlega að gera það að skildu fyrir ykkur báðar Elva og Arna Silja að koma heim! því annars held ég að ég muni ekki lifa aðra helgi :O:P
En svona er lífið á Breiðdalsvík ;D gaman gaman!:P
Hef það ekki lengra í blili
-Hófí
NAMMIII!!?!?
Christopher Lee McCuin, 25 ára, var handtekin í Texas fylki Bandaríkjanna eftir að hafa hringt í lögreglu og útskýrt fyrir þeim að hann hefði gert eitthvað af sér. McCuin hringdi í neyðarlínuna og útskýrði fyrir þeim að hann hefði myrt kærustu sína, Jane Shearer 21 ára, og væri að sjóða líkamshluta hennar heima hjá mömmu sinni.
Þegar lögreglan mætti á svæðið kom hún að limlestu líki Shearer, annað eyra hennar var í potti á eldavélinni við suðupunkt og gaffall stóð í kjötstykki á eldhúsborðinu. Óvíst er hvort McCuin hafi lagt líkamsleifarnar sér til munns.Morð McCuin á Shearer virðist hafa verið upphafið á röð glæpa sem hann framdi, því hann stakk einnig kærasta fyrrverandi konu sinnar og braust inn í fyrirtæki.
OJJJJJJ HVAÐ ER EIGINLEGA AÐ SVONA FÓLKI!!!??? ÉG HÉLT ÉG YRÐI EKKI ELDRI ÞEGAR ÉG LAS ÞETTA, ÞETTA ER ALGJÖR VIBBI!!!! OJ!!
ég er stórhneiksluð og það vottar meira að segja fyrir örlítilli ógleði!
kveðja, Arna Silja

olei
Ég vil byrja á því að óska Karen og Valla innilega til hamingju með strákinn sem fæddist í nótt, ég get ekki beðið eftir að sjá litla krílið =)
Ég er komin uppá vist, ég trúi ekki að jólafríið sé búið! það leið svo ótrúlega hratt, mér finnst eins og það séu 10 dagar síðan ég var í skólanum síðast, en svona er þetta bara. Hófí komst ekki inná vistina þannig að ég og Elva verðum bara tvær í staðinn, en Hófí er samt alveg guðvelkomið að koma og gista og halda smá slumberparty með okkur! hehe.
Maggi er farinn suður, eins gott að hann standi sig í þessu drengurinn, sem ég veit að hann gerir alveg :-) ehhrrr ég veit ekki alveg hvað ég á að segja núna nema bara gleðilegt nýtt ár öll sömul og takk fyrir það gamla!
-Arna Silja

p´s. ÞAÐ ER KOMIÐ AÐ ÞÉR HÓFÍ!!!!! :-P
Skóli á morgun!!
Já við erum að tala um það að ég og Arna Silja erum að yfirgefa Breiðdalsvík á morgun og fara upp í Egs í Skólan aftur! mig langar ekkert rosalega hehe og jú Ævar minn mig langar alveg að hitta þig;* bara ég er of mikil heimalingur:D haha
En já þessi síða á vonandi eftir að virka hjá okkur.. hehe ég fékk myndarvél í jólagjöf þannig ég ætla að vera dugleg með hana á böllum og setja á síðuna, Arna og Hófí vonandi líka:)
svo hvet ég alla að commenta og kvitta í gestabókina! og gera könnunina og vonandi eru allir samála mér maður segjir DRÁTTARVÉL ekki traktor!!! Punktur!! hehe
allavega þá er þetta komið ágæt hjá mér í bili!
///Elva Bára
Hae!!
Vonandi vinnum við í því að setja meira inná síðuna í kvöld eða á næstu kvöldum, eða dögum, eða morgnum.
Allavega, ætlum ekki að hafa þetta meira í bili.
Kveðja HAE (hæ)
